Er ég nógu íslenskur? Er þetta eðlileg rannsóknarspurning
fyrir þann sem sest niður og skrifar texta? Er Halldór Laxness nógu íslenskur? Er
Karel Čapek nógu tékkneskur? Er Elías Knörr nógu spænskur? Eða kannski of
spænskur til að skrifa ljóðabækur á íslensku?
Kveikja þessara hugleiðinga er svo gömul að ég var búinn að
gleyma henni, en galisísk-íslenski rithöfundurinn Elías Knörr (eða Portela
þegar hann er í galisískara skapi) minnti mig á þær í nýlegri grein sinni á
þessu bloggi, þar sem hann fjallar um Francisco Tario, sem svo sannarlega var
ekki nógu mexíkanskur. Þessu er lýst svo:
„Málið er að Tario skrifaði ekki einu sinni mjög
mexikóska spænsku. Sögur og persónur hans gætu eins gerst í Evrópu,
Bandaríkjunum eða annarsstaðar í heiminum. Tími og rými Tarios eru ekki bundin
neinum stað eða neinu tímabili, og enn síður neinni menningu eða þjóð. En
slíkar bókmenntir skipta ekki miklu máli í þjóðhverfum bókmenntakerfum.“
Og íslenskt bókmenntakerfi á það til að vera óvenju
þjóðhverft og oftast beinist það að okkur sjálfum, jafn sjálfhverf og við erum.
En stundum líka að hinum, stundum viljum við geta treyst því að tékkneski
rétturinn á matseðlinum sé nógu tékkneskur. Þetta er sjaldnast orðað berum
orðum, en það kemur þó fyrir – og sjaldgæft dæmi um það má finna í Reisubókarkorni Halldórs Laxness. Þar er
kafli um för Laxness til Tékklands ársins 1946 og hér kemur sá kafli sem
fjallar um tékkneskar bókmenntir:
„Við íslendingar vitum lítið sem
ekkert um tékka. Og þó, Jóhannes úr Kötlum hefur þýtt Salamöndrustríðið eftir
Tsjapek, en reyndar segir sú bók ekkert um Tékkóslóvakíu, og útdráttur er til
úr Góða hermanninum Sveik, og hann segir dálítið.“
Svo mörg voru þau orð nóbelskáldsins
um tékkneska höfunda í þessari annars ágætu ferðasögu. Salamöndrustríðið er vísindaskáldskapur þar sem risastórar
salamöndrur öðlast greind á við manneskjur og fara á endanum í stríð við
mannkynið. Þannig að nei, við fyrstu sýn segir bókin ekkert um Tékkóslóvakíu –
verandi umlukið öðrum löndum og hafið í mörghundruð kílómetra fjarlægð er
hættan af sjávarsalamöndrum meira að segja óvenju lítil.
Þak Evrópu
En Tékkóslóvakía er ekki lengur til.
Landið varð til við fall Austurrísk-Ungverska keisaradæmisins, átti tveggja
áratuga blómaskeið áður en nasistarnir marseruðu inn og fékk örstutt frí frá
alræðisstjórnum áður en kommúnistar tóku völdin, frí sem stóð einmitt þegar
Halldór heimsótti landið. Salamöndrustríðið
var hins vegar skrifuð árið 1936, táknsaga um þær ógnir alræðis sem kynnu að
vera handan við sjóndeildarhringinn og þjóðernishyggjuna sem var drifkraftur
hennar. Þessi bók og önnur verk Čapeks fóru nógu mikið í taugarnar á nasistum
til þess að hann komst í þriðja sætið á handtökulista Gestapó fyrir innrásina í
Tékkóslóvakíu (hann lést áður en til þess kom). Sagan segir líka að andstaða
hans við fasisma hafi komið í veg fyrir að hann hlyti nóbelsverðlaunin,
stuðningur við verk á borð við Salamöndrustríðið
var of stuðandi gagnvart þriðja ríkinu og þegar sænska akademían bað hann um að
skrifa „eitthvað meinlaust“ var svarið þetta: „Bestu þakkir, en ég hef fyrir
löngu skilað af mér doktorsritgerðinni.“
En Salamöndrustríðið er kannski tékknesk fyrst og fremst í þeim
skilningi hvað hún er evrópsk, enda Tékkóslóvakía í hjarta Mið-Evrópu og hafa
íbúar landsins til skiptis verið þátttakendur í leikriti Austur- og
Vestur-Evrópu. Til merkis um hve menning þeirra er sam-evrópsk þá eru Čapek og Bohumil Hrabal
líkast til einna þekktastir höfunda sem skrifa á tékkneska tungu – en hverfa þó
oftast í skugga Kafka, sem skrifaði nánast öll sín verk á þýsku, og Kundera,
sem hefur hægt og rólega skipt yfir í frönsku sem fyrsta mál í útlegð sinni í
París.
Á meðan Halldór dvelur í landinu eru
Tékkar í miðjum klíðum við að þjóðverjahreinsa landið. Hann sýnir þessu
skilning og virðist hlynntur þessu, sem er kannski skiljanlegt árið 1946 þegar
vinsældir Þjóðverja voru svo sannarlega í sögulegu lágmarki. En seinna hefur
komið í ljós hve grimmileg hefnd Tékkóslóvaka var, rúmlega tveim milljónum
þýskumælandi íbúum var vísað úr landi og talið er að um tíu þúsund manns hafi
verið drepin og aðrir tíu þúsund dáið sökum brottflutninganna. Fyrrum íbúar
Súdetahéraðanna eru ennþá að berjast fyrir einhvers konar réttlæti og þótt að
Václav Havel hafi beðist afsökunar fyrir hönd þjóðar sinnar þegar hann var forseti
og stungið upp á því að Súdetaþjóðverjum væri gert auðveldara fyrir að öðlast
tékkneskan ríkisborgararétt og endurheimta eignir sínar náði sú tillaga aldrei
í gegnum tékkneska þingið.
Missirinn var þó ekki bara hinna
brottfluttu Þjóðverja. Eftirá áttu Tékkar líka eftir að syrgja þá fjölþjóðlegu
Prag sem Kafka spratt upp úr, suðupotti gyðinga, Þjóðverja og Tékka, sem eftir á
að hyggja var einn helsti drifkraftur allrar þeirrar miklu sköpunar sem
einkenndi Tékkóslóvakíu millistríðsáranna. Leifar þessa suðupotts virðist
Halldór skynja þegar hann fjallar almennt um tékkneska listamenn með þessum
orðum: „Vonandi er það vanþekkingu minni og glapsýni að kenna að ég gat ekki
séð í list þeirra mikið sérþjóðlegt, heldur virtist hún mér samþjóðleg,
hámenníngarleg og töluvert útsmogin evrópulist, jafnvel svo að ýmsir hinna
tékknesku listamanna væru kannski heimsfrægir ef þeir væru franskir.“ Þetta
skrifar hann tveimur síðum seinna, en það er eins og hann sé hægt og rólega að
gera sér þarna grein fyrir því að styrkur tékkneskrar menningar sé einmitt
miklu frekar í hinu samþjóðlega en hinu sérþjóðlega. En þó má velta fyrir sér
orðanotkuninni, af hverju samþjóðlega frekar en sammannlega?
Faðir þjóðar
En ef Halldór hefði viljast fræðast
betur um þá Tékkóslóvakíu sem hann heimsótti hefði þó vel mátt mæla með því að
hann leitaði dýpra í smiðju Čapeks og þá útfyrir skáldskapinn. Hann var náinn vinur
forsetans Tomáš
Garigue Masaryk og skrifaði merka samtalsbók við hann sem í enskri þýðingu
kallast einfaldlega Talks With T.G.
Masaryk. Masaryk er mörgum gleymdum í dag, enda fellur blómaskeið þjóðar
hans í skuggann af alræðisstjórnunum sem komu á eftir, eða eins og útgefandi
ensku útgáfunnar orðar það í formála: „We have let Lenin, Stalin and Hitler win
the battle for our attention against a man whom they saw as a great Central
European antagonist.“
Masaryk
var ágætlega kunnur heimspekiprófessor í Prag en örlaganornirnar völdu hann
ekki í eitt aðalhlutverk Evrópusögunnar fyrr en hann var orðinn 64 ára gamall.
Þá braust heimsstyrjöldin fyrri út og Tékkóslóvakía ekki enn orðin til nema sem
hluti af keisaradæmi Habsborgaranna. Masaryk varð fljótt lykilmaður í hinni
tékknesku andspyrnu og ferðaðist vítt og breitt um veröldina á meðan á stríðinu
stóð til þess að afla fylgis þeirri hugmynd að leysa upp Austurríki-Ungverjaland
og leyfa Tékkum og Slóvökum að stofna sitt eigið ríki. Uppruni Masaryks sjálfs
kann að vera ein ástæðan fyrir því að Tékkóslóvakía varð niðurstaðan þá frekar
en Tékkland og Slóvakía, en hann var fæddur í Slóvakíu en eyddi
fullorðinsárunum að mestu í hinni tékknesku Prag.
Hann varð fyrsti forseti landsins,
árin 1918-1935, frá því hann var 68 ára og þangað til hann varð 85 ára. Sem er
máski ágætt að hafa í huga nú þegar við veltum fyrir okkur aldri mögulegra
forsetaframbjóðenda og hversu þaulsetnir þeir kunni að vera út frá því. En þetta
er einmitt bók sem væri hverjum verðandi forseta hollt að lesa. Það er aðeins
of langt síðan ég las hana til þess að ég þori að útlista í smáatriðum hvernig
pólitíkin birtist í henni, enda ekki beinlínis hægt hvort eð er, það
er frekar einhver illskilgreinanlegur þráður í hans pólitísku heimspeki sem var
orðuð best í titli safnrits um Čapek, sem
virðist hafa verið skoðanabróðir hans í pólitík: Til móts við hina rótttæku
miðju (Towards the Radical Center).
Og þótt hann hafi barist fyrir
sjálfstæði þjóðar sinnar þá ofbauð honum öfgafull þjóðernishyggja, jafnvel
þegar hún var stunduð í þeim tilgangi að auka veg sjálfstæðisbaráttu. Hann fékk
ófáa þjóðernissinna upp á móti sér þegar
hann afhjúpaði nýfundin tékknesk ættjarðarljóð frá miðöldum sem fals og ekki
kættust þeir heldur þegar hann barðist fyrir endurupptöku á máli gyðingsins
Leopold Hilsner, sökum þess að fyrri réttarhöldin hafi angað af and-semítisma.
Allt þetta var löngu áður en hann varð forseti, undir lok nítjándu aldar. Þá
var hann svo vel giftur að hann tók eftirnafn eiginkonunnar sem millinafn, en
hin bandaríska Charlotte Garigue varð fljótt lykilkona í tékkneskri
kvennabaráttu þegar hún flutti til landsins ásamt eiginmanni sínum (Masaryk
kynntist henni þegar hann var að kenna heimspeki í Vínarborg) og þýddi meðal
annars Kúgun kvenna yfir á tékknesku.
Og það er augljós þráður sem liggur frá Masaryk til annars heimspekilega
þenkjandi forseta meira en sextíu árum síðar, Václavs Havels.
Róbótar, helsprengjur og BA-ritgerðir
Karel Čapek
var afkastamikill höfundur. Þótt skáldsögurnar hafi ekki verið margar þá bætti
aragrúi smásagna, blaðagreina, ferðasagna, barnabóka og leikrita það upp. Margt
af því var vísindaskáldskapur í ætt við Salamöndrustríðið,
hann er líkast til einna þekktastur í dag fyrir æskuverk sem er þó með hans
síðri verkum, leikritið R.U.R. (Rossum's
Universal Robots), sökum þess að þar kom nýyrðið róbót fyrst fram, sótt í
slavneskt orð yfir vinnuþræl. Nýyrðasmiðurinn var þó bróðir Karels, Josef,
myndlistamaður og oft samstarfsmaður (og báðir voru hagleiksmenn á sérsviði
hins, oftast myndskreytti Josef bækur Karels en Karel myndskreytir þó sumar
sjálfar, til dæmis ferðasögurnar. Og í barnabókum unnu þeir texta og myndir í
sameiningu). Skömmu síðar kom út skáldsagan Krakatit,
spásögn um kjarnorkusprengjuna, tuttugu og einu ári fyrir Hiroshima.
En þótt Krakatit sé að upplagi þjóðfélagsádeila þá verður hún er á líður
miklu frekar ferðalag niður í myrkari kima mannssálarinnar. Þangað leitaði Čapek raunar að mínu
viti ekki nógu oft, en fáir hafa þó komist lengra en hann gerði í sínu
merkilegasta verki, þematísku trílógíunni sem samanstendur af Hordubal, Lofsteini og Venjulegu lífi
(Three Novels: Hordubal, Meteor, An
Ordinary Life heitir verkið í enskri þýðingu).
Það verk
er sannarlega sammannlegt í besta skilningi þess orðs og það var upphafleg
ástæða þess að ég fór að rugla reitum þeirra Laxness saman. Ég var einfaldlega
forvitinn að vita hvort leiðir þeirra hefðu skarast áður en þeir hittust í lokaritgerðinni
sem ég var að skrifa um verk þeirra. Sú saga öll er efni í miklu lengri grein,
en þeir sem eru æstir í að lesa tæplega hundrað síðna BA-ritgerð er þó frjálst
að hafa samband.
Ásgeir H. Ingólfsson


