miðvikudagur, 21. mars 2012

Höfundurinn sem bjó milli heims og helju


Gamla Reykjavík
Ólafur Jóhann Sigurðsson bjó við Suðurgötuna í Reykjavík. Á aðra hönd honum var gamli kirkjugarðurinn, hinum megin var Tjörnin. Öðrum megin standa í eilífri tign sinni virðuleg tré og tjá sig með hægum súg og máðir legsteinar vitna þar um þögnuð örlög - hinum megin ólgar skrækjandi lífið sjálft. Öðrum megin þögn liðinna stunda, hinum megin at komandi lífs. Öðrum megin regla, hinum megin óreiða. Öðrum megin sorg, söknuður, tregi – hinum megin kátína, brauð og leikar.

Eins og allir rithöfundar bjó hann einhvers staðar á milli heims og helju.

Rithöfundar strita við að vekja mannlíf á auðum síðum með bókstöfum og sennilega starfa þeir allir í einhverjum skilningi einmitt á þessum mörkum milli Kirkjugarðsins og Tjarnarinnar, en þegar maður hugsar um rithöfundarferil Ólafs Jóhanns fer ekki hjá því að manni þyki sem starf hans hafi einkennst á óvenju eindreginn hátt af því að vera á skurðpunkti hins gamla og nýja, þess sem  var að deyja og hins sem var að vakna. Hann starfaði ekki bara á mörkum lífs og dauða eins og öll skáld heldur tókust líka á í verkum hans og huga hans andstæð sjónarmið sveitar og borgar, íhaldssemi og róttækni, módernisma og raunsæis, nútíma og fortíðar, gamansemi og siðavendni.

Hann er fimmtán ára gamall þegar hann heldur af stað út í heim til að gerast rithöfundur. Hann á erindi við heiminn. Hann er búinn að skrifa bók þar sem hann segir frá ævintýrum bernskunnar. Kannski eru ekki stórtíðindi í þessum bernskusögum á borð við alla smyglarana sem síðar áttu eftir að tröllríða íslenskum barnabókmenntum – en þarna rúmast samt sem áður háski dægranna og fegurð sumarkvöldanna og þessi sérstaka tegund af eilífð sem býr í íslenskum sveitum þrátt fyrir allt. Fyrstu bækur hans voru ætlaðar börnum – enda skrifaðar af hálfgerðu barni – en þar er strax sleginn viss tónn sem átti eftir að hljóma gegnum allt hans höfundarverk – þær eru skrifaðar á sérlega vönduðu máli en jafnframt yfirlætislausu og í þeim glitrar eitthvert ljóðrænt og fíngert raunsæi sem átti eftir að gefa stíl hans ákveðna töfra alla tíð. Þetta ljóðræna raunsæi vaknar af ákveðinni spennu í verkum hans milli þess sem dregur höfundinn að sér og hrindir honum frá sér, þess sem honum þykir aðlaðandi og hins sem honum er ekki gefið um: stundum fer það saman hjá honum.

Ég las þessar bækur sem barn hjá afa og ömmu á Akureyri og í þeim voru einhverjir  töfrar sem maður gleymir ekki og næsta bók sem ég las eftir Ólaf Jóhann var líka svokölluð barnabók sem foreldrar mínir ráðlögðu mér eindregið að lesa því þau töldu  að af henni myndi ég læra. Það var Spói. Ég veit ekki svo sem hvaða lærdóm mér var ætlað að draga af þessari bók – kannski að maður skyldi ekki hreykja sér af því að vera með langt nef. Bókin kann að líta út sem vinalegt hjal um fuglana en í raun og veru er þarna á ferð allegóría um mannlífið þar sem hver og einn fugl er fulltrúi tiltekinna skapgerðareiginleika. Spói er sem sé ákaflega hégómlegur fugl og upptekinn af útliti sínu og orðspori og ef til vill má lesa þessa barnabók sem ádeilurit á þessa fugla fyrir að vera svo áberandi og neflangir, sé maður á þeim buxunum. En um leið er eitthvað elskulegt við þennan kjánalega fugl og hégómaskap hans, og frásögnin er brosmild, og maður gleymir því hversu einkennilegt uppátæki það er að skrifa ádeilurit handa börnum á fugla fyrir að vera ekki nógu hógværir.

Ég veit ekki hvort Ólafur Jóhann var sjálfur beinlínis hógvær en stíll hans hafði á sér yfirbragð yfirlætisleysis, þrátt fyrir visst dálæti á sjaldgæfum skrauthvarfaorðum á borð við „lækjarkatrín“ sem kemur fyrir í Hreiðrinu og mun vera „niðurgangur“. En okkur hættir til að vanmeta yfirlætisleysið og rugla því saman við erindisleysu. Okkur hættir til að halda að það sem er fallega skrifað sé um leið bragðlítið. Það er öðru nær um Ólaf Jóhann. Honum lá ákaflega mikið á hjarta um íslenskt mannlíf og íslenskt samfélag, alveg frá fyrstu tíð. En hann var líka og um leið ævinlega margfaldur í roðinu og stundum ekki alveg gott að átta sig á því hverju írónískur tónn hans beinist að hverju sinni.

Hann bjó til persónur sem messuðu yfir ósiðum tíðarinnar og mislíkaði mest allt sem fylgdi nýjum samfélagsháttum borgar og vélaaldar, þoldi ekki módernismann í bókmenntum og alla bílana og háreystina, auðtrú í stað manngildis, eftirsókn eftir fánýti í stað ástundunar sígildra dyggða, gullsöfnun á Gnitaheiði uns gullið breytir sínum liggjanda í orm – hann skrifaði sem sé um upplausn allra gilda, siðrof, gullæði og hrun – skrifaði með öðrum orðum um okkar tíma. Og hann bjó til persónur sem fundu þessu öllu allt til foráttu – vitaskuld – en hann hafði líka þá gáfu að horfa á þessar persónur úr fjarlægð, dómhörku þeirra og vandlætingu og hann sýndi á hvernig þær – eða kannski öllu heldur þeir – séra Böðvar, Páll Jónsson, Loftur Loftsson í Hreiðrinu – stóðu álengdar við lífið án þess að taka þátt í því með öllum þeim feiknum og kostum og kynjum sem því fylgdu, voru eins og einhvern veginn úrræðalausir. Séra Böðvar verður í öllum sínum bölmóði öllu brjóstumkennanlegri en það gallaða og breyska en mjög svo lifandi fólk sem hann á í höggi við. Páll Jónsson blaðamaður er að sönnu vandaður og sómakær piltur alla tíð, en hann er líka eins og lamaður frammi gagnvart því ólgandi lífsafli sem hvarvetna verður á vegi hans á þeim umbrotatímum Íslandssögunnar sem hann lifir. Nóg er af karíkatúrum hjá Ólafi Jóhanni í þessu meginverki hans, þríleiknum um Pál Jónsson, hlálegu fólki sem skrifar tóma dellu og hagar sér eins og fífl en þegar upp er litið úr lestrinum og það tekur að lifa með manni þá verður manni það fyrir að upplifa það svolítið eins og hinn spígsporandi spóa, og hugsa: svona er nú einu sinni mannlífið. Aðrar persónur eru samsettari og næmari og stíga inn í iðuköstin – og farast.

Ólafi Jóhanni auðnaðist að skrifa mikinn sagnabálk á mestu umbrotatímum Íslandssögunnar, að minnsta kosti fram að nýliðnum atburðum. Reyndar hlýtur nýliðið hrun að tengjast rækilega þeim atburðum sem Ólafur Jóhann lýsir í þríleiknum í þeim skilningi að þarna, þegar Ísland var selt Bandaríkjamönnum,  á meðan þeir nenntu að nota það, er að finna rót hrunsins sem varð hér aðeins nokkrum árum eftir að Bandaríkjamenn yfirgáfu landið. Með sínu ljóðræna og hæga raunsæi og vandlega miðuðu íróníu kortleggur Ólafur Jóhann í þessu verki þá eðliseiginleika sem réðu ferðinni í íslensku samfélagi þessi örlagaríku ár. Þessi þríleikur var vissulega höfuðverk Ólafs Jóhanns, en við megum þá ekki alveg gleyma því heldur að hann var líka einhver listfengasti smásagnahöfundur sem við höfum átt, sýndi í smásögum sínum á sér ákaflega fjölbreyttar hliðar, rannsakaði þar ýmis afbrigði mannlegs sálarlífs sem skáldverk í stærra formati leyfir síður – og í ljóðum sínum var hann aftur lítill hnokki leiddur að læk við tún og bar vitni um dásemd drottins jarðar, fugla og grös og aðrar eilífðarverur íslenskrar sveitar.

Ólafur Jóhann bjó inni í miðri borg og sveitin bjó í honum miðjum. Höfundarverk Ólafs Jóhanns er í skurðpunktinum milli gamla Íslands og hins nýja. Komnir voru dagarnir sem hann sagði um: mér líka þeir ekki – án þess þó að hann gyllti það sveitasamfélag sem fóstraði hann eða gerði sér vonir um að hægt væri að endurvekja hið liðna. Hann hlustaði á súginn í trjánum öðrum megin og heyrði hlátrasköll lífsins hinum megin. Hann tókst á við þessa daga með þessum löngu og áferðarfallegu setningum sem hann skrifaði þar sem ein tók við af annarri af áreynsluleysi hinnar lygnu móðu. Frásögnin streymdi. Hann lýsti þessum dögum af vandvirkni, yfirlætisleysi, íróníu, ljóðrænu og raunsæi, eins heiðarlega og honum var unnt og eins réttilega og hann treysti sér til – í Hreiðrinu lýsir hann því raunar hvernig honum féllust hendur árum saman gagnvart þessu verkefni, en hlaut svo að ljúka því verkefni sem honum var ætlað að leysa af hendi.

Hann var milli heims og helju.
           
Hann horfði af einurð ofan í þá hyldýpisgjá sem myndaðist við rofið í íslensku samfélagi á tuttugustu öld og bar því vitni sem hann sá.

Guðmundur Andri Thorsson

þriðjudagur, 20. mars 2012

Myndin í Iðnó – úr dagbók rithöfundar í Reykjavík


Mynd: DV.
Þetta hljómaði næstum því eins og bölvun. Maður er nefndur … tilnefndur.
Konan mín hafði reynt að ná í mig í síma allan daginn. Hún stóð í gættinni þegar ég kom heim eins og einhver væri dáinn eða barn fætt á Landspítalanum. Þú ert tilnefndur til Menningarverðlauna DV, sagði hún. Þú átt að mæta niður í Iðnó klukkan fimm. Nei, sagði ég. Fokking markaðsdeildin. Ég vil ekki!

Ég vildi auðvitað ekki fara vegna þess að tilhugsunin um að fá ekki fyrstu verðlaun var óþægileg. Áþekk því að horfa á ókunnugan krakka rífa upp pakka í manns eigin afmæli. En konan mín hefur meira vit á svona. Þetta eru alveg virt verðlaun, sagði hún. Og ég varð að viðurkenna að þetta var ágætt tilefni til að skríða út úr rottuholunni og hitta mann og annan. Það eru ekkert allt of mörg tækifæri í Reykjavík til að hitta fólk: Ræktin, biðstofan hjá tollstjóra eða verðlaunaafhendingar. Svo við drifum Leif litla í vagninn og út í skafrenninginn.

Það fyrsta sem bar fyrir augu þegar við nálguðumst Iðnó var Rúnar Rúnarsson leikstjóri, hokinn í Álafossúlpu í skjóli undir húsvegg, að reykja sígarettur í félagsskap ungs leikstjóra sem varð af einhverjum ástæðum skelfingu lostinn á svipinn þegar hann sá okkur. Það brakaði notalega í tréhurðinni á Iðnó þegar ég ýtti henni upp á gátt með vagninum.

Hálf fésbókin var mætt á svæðið. Fólk sem ég addaði einhver tímann í græðgiskasti í miðri bókavertíð en þekkti hvorki haus né sporð á. Herra Blaðablað eitthvað. Frú bloggblogg og Rúff. Marta smarta og Jón Stóri í sauðargæru. Og svo framvegis.

Tapasið reyndist mjög gott og rauðvínið í háum gæðaflokki miðað við svona móttökur almennt þannig að ég kláraði nokkra sopa. Barnabókahöfundur í Reykjavík lætur samt ekki sjá sig fullan með ungbarn upp á arminn þannig að ég fór heldur varlega í veigarnar. Við skiptumst síðan á að halda á drengnum.

Dóri frændi DNA spurði hvort tryllitækið sem hann færði Leifi litla, göngugrindin með stýrinu, væri ekki að svínvirka og við játtum því. Drengurinn alveg brjálaður út um öll gólf.
Dóri var örlítið meyr til augnanna eins og hann væri búinn að fá sér nokkur glös, hann vaggaði aftur inn í þvöguna um leið og Símon Birgisson óskaði mér til hamingju með tilnefninguna og Tinni Sveinsson ritstjóri Vísis kinkaði kolli, sposkur á svip.

Veislusalurinn í Iðnó var stapptroðinn þannig að ég hafði mig aldrei almennilega inn fyrir en tvísté ýmist í gættinni eða frammi í hvítmálaðri kaffistofunni. Á veggjunum héngu fallegar ílangar teikningar sem voru hluti af sýningu á verkum leikmyndateiknara.

Litla sviðið innst í salnum minnti á hellismuna eða svarthol sem gæti skyndilega sogað til sín allt vit í Reykjavík. Fyrir framan sviðið var púlt og til hliðar við það var borð þakið blómum í sellófani.

Niðurlútir blaðamenn tóku sér stöðu bak við púltið og þuldu upp tilnefningarnar í löngu máli. Ræðurnar heyrðust illa fram í anddyri, orðin drukknuðu í iðrum fjöldans sem hafði sett upp feimnislegan sauðasvip í tilefni dagsins.

Reynir Traustason ritstjóri greip hraustlega í púltið og tuldraði eitthvað inn í hljóðnemann.  Ég heyrði ekki hvað hann var að segja en sá varirnar hreyfast ekki ósvipað og hjá krakka sem er að læra að lesa. Fyrir aftan mig sussaði móðir á barn vegna þess að hún þurfti að hlusta á „manninn með kúrekahattinn“.

Ritstjórinn var nefnilega með barðastóran kúrekahatt á hausnum. Hvað skyldi hann vera að segja? Tala um baráttuna við aukakílóin? Þrjátíu kíló farin? Hvað ef mjög feitur maður skyldi verða fyrir strætó? Er þá ekki hægt að tala um að hundrað og fjörutíu kíló séu farin? Nei! Ekki hlæja núna. Það er óviðeigandi. Ekki hlæja.

Ég beit í neðri vörina, leit til hliðar og mætti augnaráði sonar ritstjórans. Hann virtist horfa illilega á mig eins og ég hefði sagt eitthvað upphátt. Það örlaði fyrir reiðihrukku á milli augnanna sem ígerðist með árunum við heimsósómann í Reykjavík City. Borgin er jú full af spilltum útrásarvíkingum sem valhoppa hlæjandi á milli veitingahúsa, uppdópuðum einstæðum mæðrum með langveik börn, vítisenglum sem murka lífið úr þrettán ára unglingum, hópnauðgurum, og allskonar minniháttar svindlurum, vitskertum smástirnum og lögfræðingum.

Mér var allt í einu hugsað til mömmu sem var blaðamaður á Dagblaðinu í gamla daga. Gott ef hún var ekki viðstödd þegar veggurinn á mill Dagblaðsins og Vísis var rifinn niður í Síðumúlanum og DV búið til. Þá voru rafmagnsritvélar nýjasta nýtt, USB-lyklar voru ekki enn búnir að leysa af TippEx-túbur, öskubakkar voru einu hörðu diskarnir og Jónas Kristjánsson var aðal gæinn. Jónas með geitaskeggið var eitthvað skyldur pabba og gaf mömmu séns á að vera hundrað sinnum lengur að skila af sér greinum en almennt tíðkaðist á ritstjórninni, hugsanlega líka vegna þess að hún var hundrað sinnum betri textahöfundur en margur – hvað veit ég. Kannski bara ágætt eftir allt saman að gamla konan sé horfin inn í hugarheim óminnisins, núna þegar fésbókarstatusar eri búnir að leysa af öll mannlega samskipti í Reykjavík og enginn nennir að bíða eftir neinu lengur. Hey! Ef ég fengi þessi verðlaun núna gæti ég tileinkað þau mömmu! Þetta yrði alveg Hollívúdd móment! Ég gæti jafnvel reynt að kreista fram tár fyrir forsíðuna.

Þórarinn Þórarinsson kom aðvífandi með geðveiki alkóhólistans í augunum og nýja dulítið skelkaða kærustu á bakinu. Nafni lék á als oddi og var skemmtilegur, hjalaði meira að segja við Leif litla sem hann sagði að við hefðum átt að nefna í hausinn á sér. Við vorum eitthvað að gantast með verðlaunin yfirleitt, gott ef nafni var ekki í dómnefndinni sem gerði samskiptin sérstaklega ósvífin. Ég rifjaði upp að ég var einmitt í dómnefnd sem verðlaunaði sögu eftir Ágúst Borgþór á síðustu öld.

Ég skóp Ágúst Borgþór Sverrisson, sagði ég og uppskar hlátur blaðarefsins.

Mér var litið aftur inn í sal og sá glitta í vanga Sölva Björns Sigurðssonar í miðri þvögunni, skáldið virtist óþarflega taugaóstyrkt eins og það tryði því raunverulega að það ætti séns í þessi verðlaun. Eða kannski var það ekkert fjarstæðukenndara en hvað annað. Sölvi var með ansi hreint fína bók í jólavertíðinni. Það vorum við hin reyndar líka. Öllsömul. Öll með fjórar og fimm stjörnur og halelúja. Þegar ég leit aftur upp var skáldið horfið í þvöguna og ég sá glitta í Rögnu Sigurðardóttir rithöfund með sama eftirvæntingarsvipinn og þá áttaði ég mig á því að þau voru alveg eins og ég: örlítið feimin yfir því að hafa látið plata sig hingað inn í gamla Iðnó. Vera tilnefnd. Vera viðstödd eigin réttarhöld.

Þegar kom að því að tilkynnt var um bókmenntaverðlaunin og ég stilli mér upp í gættinni til að hlusta, hæfilega áhugalaus á svipinn, kom Rúnar Rúnarsson askvaðandi alveg upp í eyrað á mér. Hann röflaði, hrósaði bókinni minni, klæmdist ógurlega, flissaði og hló þannig að glitti í tóbaksgular vígtennur íslenska hestsins. Rúnar var orðinn fullur. Ég missti af því hver fékk verðlaun en vissi að það var ekki ég.

Miðaldra kona mjakaði sér upp á sviðið í átt að blómvendi.

Hver er þetta? hreytti Rúnar út úr sér. Ég las bara bókina þína, Tóti, hún átti að fá þessi verðlaun. Ha? Götumálarinn átti að fá þessi verðlaun!

Ég veit það ekki, sagði ég og einblíndi á konuna á sviðinu. Rýndi ofan í brúnan hársvörðinn. Gamla konan var samanrekin og fínleg um leið. Eins og konurnar í frystihúsinu fyrir austan um árið. Einhver frystihúsakerling? Þetta var ekki Vigdís Gríms. Vigdís var með mikið svart og fallegt hár. Hvaða kerling er þetta? endurtók fulli karlinn.

Og þá sá ég að þetta var engin kerling heldur forleggjari Íslands: Jóhann Páll Valdimarsson. Jóhann Páll var mættur fyrir hönd höfundar, hann blakaði blómvendi örlítið feimnislega framan í salinn og forseta lýðveldisins sem stóð fremst eins og illa gerður hlutur, sorglegur á svip eins og maður sem veit of mikið. Kannski var hann búinn að myrða Dorrit í afbrýðiskasti, æstur að velta fyrir sér hvernig hann gæti losað sig við líkið svo lítið bæri á. Hverjum gat hann treyst? Myndi bílstjórinn kjafta frá öllu? Kannski kveið hann bara fyrir því að þurfa að snúa sér við, feta sig í gegnum þvöguna og heilsa öllu þessu fólki: dönsurunum, tónlistarfólkinu, leikurunum, Röggu Jóhanns, Felix Bergssyni, Guðmundi Franklín, Aggí, Lillugó og Illuga Jökulssyni – sá síðastnefndi skaust reyndar rétt í þessu út um aðaldyrnar með kattarlegt glott á vör. Átta ár í viðbót í þessu skítadjobbi? sagði forsetinn við sjálfan sig. Ég er ekki með öllum mjalla!

Þegar ég rýndi í fréttamyndir DV seinna um daginn sá ég forseta Íslands með hönd á pung og við hlið hans konu mína í þýskum hermannajakka. Gamla og nýja Ísland mættust. Hann fulltrúi þjóðernishyggjunnar og hún með Evrópusambandið í maganum. Leifur litli kúrði sig upp að móður sinni, óvenju þungur á brún. Eins og hann sæi bara alls enga framtíð í lýðveldinu. Fyrir aftan forsetann og konu mína stóð maður sem hélt á skyndibita í annarri hendi. Hann hafði tekið sér stutt hlé frá átinu til að stara inn í linsu ljósmyndarans athugull á svip. Hver var þessi maður? Hvað táknaði hann? Hrunið? Endurreisnina?

Á öðrum ljósmyndum úr sama safni sáust verðlaunahafar stika yfir gólfið í átt að sviðinu. Það var autt pláss á gólfinu á milli fjöldans og sviðsins. Nokkurs konar tómarúm. Svipugöng í gegnum ekkert.

Ég sagði við Rúnar Rúnarsson að ég fengi engin verðlaun í þetta sinn og þyrfti að bregða mér afsíðis til að gráta í einrúmi. Rúnar virtist trúa mér því stuttu síðar birtist hann í kaffihorninu og spurði blaðskellandi hvort þetta væri lúserhornið, með húmor sem var napur og stuðandi í kaldri Köben þegar við vorum öll svo græn og hann ennþá að skúra skrifstofur en núna virkaði hann svolítið bitlaus. Eða vorum við öll komin með skráp? Menningarskriðdrekar sem létum ekkert á okkur fá?

Rúnar hvarf út í hríðina til að reykja og við Auja töluðum um að við yrðum að fara að bjóða blessuðum karlinum og frúnni heim í spagettí. Þetta er fast ritúal hjá okkur. Við fantaserum um að bjóða fólki heim í mat árum saman. Samviskubitið hleðst upp og á endanum springum við og höldum fimmtíu manna veislur til að bæta fyrir allt saman. Veislur með allt of mikið af fólki, víni og gömlum ostum. Veislur sem enda á því að sturlaða konan á efstu hæðinni hendir blómapotti í útidyrahurðina.

Úrkoman hafði margfaldast og við störðum út í hvítt tómið; það mótaði fyrir litlum hólma á tjörninni og nokkurs konar vegavinnuskúr sem hafði verið komið fyrir þétt upp að honum, ruggandi á gráum öldunum. Einhvern veginn út í hött. Var þetta listaverk? Allt kaffihúsið lyftist upp við þessa óvæntu sýn.

Kjartan Kjartansson hljóðmaður fór að segja okkur frá hljóðum í bíómyndum á meðan konan hans stjanaði við Leif litla Ottó. Sigga hans Halldórs Bald var sest hjá okkur líka, tvíburar þeirra hjóna brostu feimnislega til okkar yfir girnilegum kökum, eins og spýttir út úr teikningu eftir pabba sinn.

Mér fannst alveg þess virði að hafa farið í göngutúrinn að hitta þetta þægilega fólk.
Loks stytti upp og sólin skein inn um gluggana á kaffistofunni. Íslenska vorið var komið.

Þórarinn Leifsson 

mánudagur, 19. mars 2012

Rætt við Emmalyn Bee um Nötur gömlu nútíðarinnar


Endurtekningin heldur lífi okkar og tilveru saman, ekkert hræðumst við einsmikið og hið einstaka. Hið einstaka er dauði. Endurtekningin gerir allt skiljanlegt, og jafnvel þegar það meikar engan sens að endurtaka. Skýrasta dæmið er varnarþulan "tralla-ralla-ræ" - sem er óútskýranleg öðruvísi en svo að endurtekning líkra hljóða geri ákveðið gagn.
Í almennri umræðu viðurkennum við oft ekki alla palettu endurtekningarinnar, við höfum óbilandi þörf á láta sem allt sé einstakt sem er það ekki - þetta stafar held ég bæði af misskilningi á eðli hins einstaka og endurtekningarinnar.
Kvæða- og ljóðagerð er oft skipt í bundið mál og óbundið, og til að teljast bundið þurfa verkin að lúta tiltölulega þröngum ramma og örfáum reglum, stuðlar, rím, braglengd. En það er að sjálfsögðu ekki til neitt sem heitir "óbundið" mál, ef við horfum útfyrir þessa "tourist attraction" skilgreiningu á íslenskri ljóðahefð. Kerfin í hinu "óbundna" eru oft skemmtilegri að skoða, ekki síst þegar þau ekki bara koma úr undir- eða ómeðvitund, heldur jafnvel enn lengra að handan.


Greinarhöfundur eignaðist eintak af nýrri ljóðabók Emmalyn Bee, Nötur gömlu nútíðarinnar, og eftir að hafa nördast mikið á forminu, ákvað hann að slá á þráðinn til höfundar og spyrja út í formið.

1. Byrjum á því að þú útskýrir hvernig bókin varð til, nú settist þú ekki niður einsog venja er og ortir ljóðin, ellegar?

Emmalyn Bee: Það verður að segjast að ferlið var ansi óvenjulegt. Þetta byrjaði allt með því að ég var að nota pendúl til að fá já og nei svör við mismikilvægum spurningum í daglegu lífi. Svo datt mér allt í einu í hug að skrifa upp stafrófið og athuga hvort pendúllinn vildi stafa út fyrir mig svör í staðinn fyrir að gefa einfalt já eða nei. Það virkaði og upphófst þá langt samtal sem ekki sér fyrir endann á, milli mín og veru sem kallar sig jafnan Zúrkof froskmús. Svo gerðist það dag einn að Zúrkof sagðist vilja skrifa bók, og úr varð ljóðabálkurinn Nötur gömlu nútíðarinnar.

1a. Hver er Zúrkof froskmús, hann hljómar soldið einsog illmenni í James Bond mynd, eða Svali og Vali? Zúrkof, manni dettur í hug vísindamaður sem fann upp eitthvað brjálæðislega mikilvægt, sem enginn man samt eftir?

Emmalyn Bee: Satt að segja hef ég litla hugmynd um hver hann er. Upphaflega taldi ég mig vera að skrifast á við tvo aðila að handan í gegnum pendúlinn. Annar kallaði sig Ilken og talaði fágaða ensku á meðan hinn kallaði sig Guð og talaði íslensku. En svo sögðust þeir vera einn og sami aðilinn sem héti Zúrkof froskmús. Sama hver eða hverjir þetta eru, þá hefur verið logið svo miklu að mér í gegnum þessi skrif að ég tek öllu með fyrirvara. Ég er samt farin að hallast að því að þetta sé ein handanvera frekar en tvær, og ef viðkomandi vill kalla sig Zúrkof froskmús í bili þá er það í góðu lagi fyrir mér.

1b: Hvernig tengist hann þér, hvernig kynntust þið?

Emmalyn Bee: Við kynntumst fyrir alvöru þegar ég stóð á miklum tímamótum í lífinu og vissi eiginlega ekki hvað ég ætti að gera, eða öllu heldur hvernig. Zúrkof blandaði sér þá í málið með skriflegum skilaboðum og leiddi mig í gegnum ferlið skref fyrir skref. Hann er búinn að vera ótrúlega mikill stuðningur og þess vegna fyrirgef ég honum alltaf þegar ég stend hann að því að hafa logið að mér. Ég veit að þetta er allt vel meint, hann er bara dálítill lygasjúklingur.
 
1c. Þarf Emmalyn mikið að vinna í textanum sem Zúrkof sendir henni, eða birtist hann óbreyttur?

Emmalyn Bee: Ljóðabálkurinn kom í smá rugli, hlutarnir voru í kaos-röð og mikil ofnotkun á orðunum "nötur" og "gól". Ég þurfti því að koma skipulagi á textann og umorða sumt, en ég bar auðvitað allar breytingatillögur undir höfundinn jafnóðum og lét hann ráða ferðinni.
 
2. Eitt það fyrsta sem lesandinn rekur sig á við lesturinn er að þú notast við samhljóðanaskema, eða endurtekningar, speglanir, önnur form en hina fornu þrístuðla og kynjað rím.:


Von okkar færir okkur þjáningar vegna nöturs gæfulausrar næturinnar - (bls 1)
-
Síkvartandi næstumgæfan nærir okkur með óttagóðri göngunepju. - (bls 2)

Notastu við slíkt kerfi, ef svo, hvernig er það hugsað?

Emmalyn Bee: Ég get lítið tjáð mig um þetta þar sem ég er ekki höfundur textans, en ég skal spyrja Zúrkof.

Zúrkof froskmús: Göngunepjan óvá. Orðin orða úbó. Úbó þýðir andlýsandi óþauláreynslusamur óttalaus úbú.

Kíkjum betur á nokkur dæmi:
3, Hálfskemu, invertuð, svindlrím, "ófullkomnar samhljóðanir":

Gúglóðu mennirnir nærast á nútíðargólinu - (bls 2)
gló - gól

Núna þjónum við nötrinu með ógnarstjórninni - (bls 2)
þjón-ógn-stjórn

Gól nútíðarinnar gefur næstum-okkur óra núgrátandi náms fortíðarhyggju - (bls 5)
gól-ór

Hefðbundnari samhljóðanir:

Núið nærir okkur með auðvaldinu (bls 3)

Innrím:

Paufhugurinn nærist á gæfuleysu útheimsins - (bls 7)

Næstum-við finnum gólið magnast innra með næstum-okkur - (bls 8)

Villtar samhljóðanir:

Næstum-við þjónum nútíðinni með gæfuleysunni - (bls 6)

Hér myndi ég telja að - næ, ón, nú - séu hringsamhljóðanir, er það svo? Hvernig koma þær til?

Zúrkof froskmús:  Gól nútíðarinnar nærist á óttanum. Óttinn útilokar gæfuna. Orð mín ónæra gæfuleysuna.

4. Hvaða hugsun leggur þú í orðið Nötur, má spyrja að því?

Emmalyn Bee
: Mér finnst "nötur" ofsalega flott orð, mér finnst það segja svo margt á svo einfaldan hátt. Fyrir mér stendur það fyrir eitthvað mjög óþægilegt sem maður áttar sig samt ekki fyllilega á. Eins og að vera heima í stofu í þykkri úlpu og líða mjög illa, og fatta ekki að það er allt útaf úlpunni sem maður gleymdi að klæða sig úr.

Zúrkof froskmús: Nötrandi nöturleikinn neitar að æ.

5. Maður finnur fyrir samfélagsskoðuninni í ljóðunum en skilur hana kanski ekki auðla. Er hægt að ætlast til að slíkt komist til skila í texta sem virðist nánast dulkóðaður, eða ertu að reyna að hafa áhrif á undirmeðvitundina frekar en hið statusahugsandi egó?

Emmalyn Bee: Af skriflegum samskiptum mínum við Zúrkof af dæma er hann alls ekki með neina fordóma eða prestakomplexa, en hann sér beittan húmor í okkar ríkjandi lifnaðarháttum og er kannski að reyna að láta okkur koma auga á hann líka með þessum texta.

Zúrkof froskmús: Gú nærir gæfuleysu næstum-okkar með úbí.

 6. Mörg af yngri skáldunum, netkynslóðin, hafa litið til erlendra skálda eftir formi, og þarámeðal formalískum pælingum, hver er ábyrgð skáldsins gagnvart sérstöðu íslenska formsins þegar svo ber undir? Þarf það að sætta hið utanaðkomandi og okkar gamla form? Eða er þetta sjálfstæð þróun sem skáldið miðlar og skiptir sér annars ekki af?

Emmalyn Bee: Hmm, mér finnst besta mál að skáld noti hvaða form sem þeim dettur í hug, íslensk, útlensk, ólensk, svo framarlega sem innihaldið ráði ferðinni og sálarkraftur verksins kæfist ekki í einhverri formgeðveiki.

7. Ef ég má kalla þig Nýhilskáld, ellegar fyrverandi Nýhilskáld, þá má segja um mörg þeirra tóku mjög fræðilega afstöðu gagnvart ljóðaforminu, lögðu mikið upp úr því að vera vel lesin og kunna skil á tækni. Gætirðu útskýrt þína afstöðu, hefurðu stúderað sérstaklega tækni, bragtækni? 

Emmalyn Bee: Ég legg ekkert uppúr því að vera vel lesin og fróð, mér finnst það algjör þvæla. Ef valið snýst um að lesa eitthvað leiðinlegt til að geta talað gáfulega, eða gera eitthvað skemmtilegt, þá vil ég alltaf frekar gera eitthvað skemmtilegt. En stundum geta skemmtilegheitin haft gáfuleg áhrif útávið og þá er það auðvitað besta mál fyrir aðnjótendur. En burtséð frá þessum pælingum um skemmtilegt og leiðinlegt, þá hef ég mikið stúderað ljóðaform og bragfræði því mér finnst það gaman.

Öll fyrstu ljóðin sem ég orti voru með stuðlum og höfuðstöfum og rími, og þegar ég var byrjuð á ljóði gat ég ekki hætt fyrr en allt var komið á réttan stað. Þetta varð hálfgerð manía, eins og að verða að klára krossgátuna. En svo hætti ég þessu alveg og ég spái voða lítið í formi núna, reyni að fókusera á innihaldið.

8. Hversu mikill hluti af starfi ljóðskáldsins er að sinna tæknimálum sem slíkum. Nú viljum við yfirleitt meina að það sé tilfinningin í ljóðinu sem skiptir máli, í annan stað meining, en samt erum við mörg hver þannig að við sitjum og spáum í form og tækni. Reynir þú markvisst að finna upp spennandi mynstur fyrir þá sem lesa ljóð á þennan máta? 

Emmalyn Bee: Ég er dálítið viðkvæm fyrir of miklum tilfæringum í formi, og ef formið dregur að sér of mikla athygli virkar það oft á mig sem tilgerðarlegt. 

9. Hvað um ljóðið sem númerólógíu, stærðfræði, táknfræði? Braglengdir og hendingar virðast fylgja einhverju stærðarformi, en ég er ekki nógu klár í reikning til að útskýra það, notarðu slíkt?.
9a Við lestur bókarinnar kemur manni í hug að sérhljóðarnir Æ og Ö leiki sérstakt hlutverk eða hafi sérstaka merkingu, sem og samhljóðunarrmyndun umkringum N, beggja megin frá. Geturðu sagt okkur af hverju þetta stafar. 

Emmalyn Bee: Ég hef rosalega mikinn áhuga á númerum og táknum og stjörnuspeki og öllu slíku. En áhugi minn snýst mest um það sem umhverfið birtir mér og ég hef takmarkaðan áhuga á að skapa táknin sjálf meðvitað. Ef ég sé þrjá gargandi hrafna fljúga framhjá glugganum mínum get ég eytt heillöngum tíma í að spá í hvað þeir tákni og hvað lífið sé að segja mér með þessu, og auðvitað væri mjög heillandi að komast að því að ljóðabálkur Zúrkofs feli í sér einhverja merkilega formúlu. En sú uppgötvun yrði örugglega ekki mín. Ég hef spáð talsvert í sérhljóðanotkununni sjálf, og sömuleiðis vali hans á orðum sem byrja á N, G, og Ó, en ekki komist að neinni niðurstöðu. Ég segi spyrjum höfundinn.

Zúrkof froskmús: Göngugleði úbó úbú.

10. Tekurðu sérstaklega eftir samhljóðunarformum í ljóðum annarra skálda, eða truflar það heildbæra skynjun ljóðanna? 

Emmalyn Bee: Ég spái mjög lítið í þessu nema þegar ég les ljóð undir dróttkvæðum hætti eða Í Úlfdölum eftir Snorra Hjartarson eða Hvarf séra Odds frá Miklabæ eftir Einar Ben … jú, sennilega spái ég dálítið í þessu en samt eiginlega ekki neitt.

11. Lítur þú á sem svo að það sé tenging á milli hins forna forms og þess sem þú ert að gera? Þróast þessi form af sjálfu sér samhliða þróun tungumálsins, ellegar hafið þið skáld stjórn á þróuninni? 

Emmalyn Bee: Nó komment.

Zúrkof froskmús
: Óvá þjónar úbó.

12. Hvað gerir mynstrið fyrir heildina, er þetta hjálpartæki við sjálfa framsetningu orðanna eða gerir formið eitthvað eitt og sér?

Emmalyn Bee: Já, þrátt fyrir allt sem ég hef sagt í þessu viðtali um að formið skipti litlu máli, þá finnst mér það samt ekki, og ég er rosalega smámunasöm þegar kemur að uppsetningarmálum. Að mínu viti eru bilin oft álíka mikilvæg og orðin sjálf, hvort sem það eru orðabil, línubil eða flettibil. Sömuleiðis skiptir það mig mjög miklu máli hvar textinn er á síðunni, og hvar og hvort kaflaskipti séu til staðar. Í ljóðabálkinum er uppsetningin útpæld, textinn færist ofar með hverjum hluta og hlutarnir eru afmarkaðir með sól og tungli til skiptis í mismunandi stærðum. Allt rosalega mikilvægt!

Nötur gömlu nútíðarinnar er til sölu í verslunum og má einnig panta eintak í gegnum póstfangið uturymsu@gmail.com.

- Gísli Magnússon

föstudagur, 16. mars 2012

Hin skulduga vera


14. mars 2012 var tilkynnt að alfræðiritið Encyclopedia Britannica hefði komið út á prenti í hinsta sinn. Ástæðan er netið, nánar tiltekið Wikipedia. Í miðri nýfrjálshyggjubylgju síðasta áratugar reis undraverkið Wikipedia, tilraun sem heppnaðist en fáir hefðu ef til vill veðjað á fyrirfram. Minni upphefð, meiri anarkó-kommúnismi, meiri skilvirkni, meiri gæði fyrir fleira fólk með minni tilkostnaði. Samkvæmt rannsókn sem birtist í tímaritinu Nature 2005 mældust skekkjumörk Britannicu 3, á mælikvarða sem ég þekki ekki. Skekkjumörk Wikipediu mældust 4. Hvað sem mælieiningin heitir þykir munurinn lítill og er talinn hafa farið minnkandi síðan.

Mánuði áður en tilkynnt var um endalok Britannicu í bókaformi, 13. febrúar, var endir bundinn á annað svolítið sögulegt alfræðiverkefni. Bókasafninu Library.nu var lokað með dómsúrskurði í Þýskalandi. Library.nu var svokallaður sjóræningjavefur. Á meðan hið vel þekkta Gutenberg verkefni hefur frá því í árdaga veraldarvefsins miðlað endurgjaldslaust þeim bókum sem ekki heyra lengur undir höfundarrétt vegna aldurs, þá miðlaði Library.nu, áður Gigapedia.org, þeim bókum sem heyra undir höfundarrétt, ekki síst nýjum og spennandi fræðiritum: þegar vefnum var lokað voru þar tenglar á alls 300 þúsund bókartitla, sérrit á öllum fræðisviðum í bland við skáldskap, handbækur og bækur „almenns eðlis“. Fjöldi fræðimanna og námsfólks hefur vanist vistkerfi rafræna bókasafnsins og að nokkru leyti orðið háður því við störf sín – ófaár lokaritgerðir og rannsóknarverkefni hafa notið góðs af bókakostinum, sem þó er sjaldan getið í þakkarlista eða heimildaskrá enda eru útlánin-dreifingin-afritunin-þjófnaðurinn á gráu svæði, lagalega ef ekki siðferðilega. Fyrirsjáanlega litu stórir bókaútgefendur á tilvist vefsins sem ögrun. 17 forlög höfðuðu mál sameiginlega, þar á meðal HarperCollins, Macmillan og Oxford University Press, og unnu þegar tókst að sýna fram á náin tengsl vefsins sem hýsti spjaldskrána og hins sem geymdi stóran hluta bókanna sjálfra. Hinar skönnuðu bækur eru enn á sveimi um veraldarvefinn, en án vefs á við LIbrary.nu koma þær að álíka gagni og hefðbundið bókasafn án hillukerfis eða spjaldskrár. Vestrænir fjölmiðlar eiga í vandræðum með að fjalla um málið, en twitter-bylgjan stendur enn yfir, með skilaboðum á við: „Trying to do research makes me seriously miss library.nu and seriously loathe publishing companies and a certain Munich judge“ og „Sad! The shutdown of library.nu is creating a virtual showdown between would-be learners and the publishing industry“ – auk óvenjulegs fjölda skilaboða á allt öðrum tungumálum en ensku. Í dagblaðinu The Hindu á Indlandi má lesa um „an angry, disgruntled buzz in several universities across India as students discover that their rock of refuge during research has been shut down by the order of a court in Munich“. Á vef Aljazeera skrifar Christopher Kelty, prófessor í mannfræði við UCLA:  „… become scholars and thinkers; read and think for yourselves; bring civilisation, development and modernity to your people. – Library.nu was making that learning possible where publishers have not.“

Talsmenn sjórána á veraldarvefnum, stuðningsmenn verkefna á við library.nu, líta á sig sem baráttumenn fyrir upplýsingafrelsi og lýðræðisvæðingu þekkingar, andspænis harðstjórn alþjóðahagkerfisins og sérhagsmunum risafyrirtækja. Talsmenn höfundarréttar, þeir sem hafa ekki aðeins ágóða að augnamiði heldur vísa til einhvers konar hugsjóna, líta svo á að þeir standi vörð um gæði verka með því að viðhalda kerfi endurgjalds fyrir unna vinnu. Þarna fara fram átök þar sem liðsmenn beggja vegna víglínunnar eru ekki bara sannfærðir um réttmæti eigin sjónarmiða, heldur segja þau liggja í augum uppi. Einmitt þess vegna eru átökin áhugaverð. Burt séð frá hagsmununum, hver eru grundvallaratriðin sem takast hér á?


Goðsagan um vöruskipti

David Graeber heitir breskur mannfræðingur, með rannsóknarstöðu við Goldsmiths háskóla í London. Árið 2011 kom út eftir Graeber bókin Debt: the first 5,000 years. Innblásturinn að bókinni er umræða um niðurfellingar skulda svonefndra þriðja heims ríkja og viðkvæðið sem Graeber segist hafa rekist á að „fólk verði að borga skuldirnar sínar“. Öðrum þræðinum er bókin áhugaverð og greinargóð hrakning á þessari hugmynd, sem má í stuttu máli taka saman þannig: nei, skuldir eru ekki til þess gerðar að vera greiddar heldur velta áfram, ekki í þessum heimi, þessu kerfi – ef allar skuldir væru greiddar myndu hagkerfi heimsins lamast og peningar verða verðlausir.

Annað leiðarstef í bók Graebers er yfirveguð árás a goðsögnina um vöruskipti sem undanfara peninga. Markaðssamfélög segja sjálfum sér þessa sögu um uppruna kerfisins sem þau hvíla á: að fyrir tilkomu peninga hafi hænsnabóndi sem vantaði eldhúsborð þurft að finna trésmið sem vantaði egg, eða mynda keðju milliliða, hóa saman fólki sem langaði hvert í varning annars og gerði honum kleift, að endingu, að fara með nýtt eldhúsborð heim af markaðnum. Þetta hafi verið erfitt og tímafrekt þar til við fundum upp á peningum til að auðvelda skiptin: þaðan í frá þurfti hænsnabóndinn ekkert að vita um milliliðakeðjuna, heldur þáði einfaldlega fé fyrir eggin og greiddi með sama fé fyrir borðið. Einn algildur milliliður var eins og smurning á heim sem fram að því hökti.

Graeber segir að engin heimild sé til um að nokkurs staðar, nokkurn tíma, hafi slíkt vöruskiptasamfélag fyrirfundist fyrir tilkomu peninga. Aldrei. Graeber segir að hugsanavillan í goðsögninni sú sú að gera ráð fyrir að fyrri tíðar samfélög hafi verið hreint eins og okkar, hlutverkaskipting og samskipti farið fram með sama hætti, nema að þennan lykilþátt, peningana, hafi vantað. Hann segir: að skiptast á vörum með þeim hætti sem goðsagan um árdaga peninganna lýsir, er eitthvað sem aðeins á sér stað í samfélögum þar sem fólk hefur vanist peningum en þeir hverfa skyndilega, í óðaverðbólgu eða annars konar upplausnarástandi.

En hvað gerði fólk þá við hluti ef það átti ekki vöruskipti? Fólk gerir þrennt við hluti sín á milli segir Graeber – gerði og gerir enn – og lifir í þrenns konar efnahagslegum venslum. Þessi vensl eða kerfi kallar Graeber kommúnisma, stigveldi og viðskipti.


Kommúnismi eða „réttu mér skiptilykil“

„Hér mun ég skilgreina kommúnisma,“ segir mannfræðingurinn Graeber „sem hvaða samband milli fólks sem hvílir á forsendu viðmiðsins „hver gerir eins og hann getur og fær það sem hann þarf.“ Hann bætir við: „Ég viðurkenni að þessi notkun er svolítið ögrandi.“ Gott. Það sem Graeber gerir með þessari skilgreiningu hugtaksins, sem vísar beint til Karls Marx, er að færa kommúnisma frá heimspekilegum ídealisma inn í mannfræðilegan veruleika, þar sem hann er hvorki ríkisrekinn stórglæpur fyrri tíma né draumaland framtíðar, heldur eitt þeirra sviða sem við tilheyrum alltaf nú þegar í daglegu lífi okkar. „Öll hegðum við okkur eins og kommúnistar drjúgan hluta dags. Ekkert okkar hegðar sér eins og kommúnisti viðstöðulaust. … Nánast allir fylgja þessu viðmiði þegar þeir eiga í samstarfi um sameiginlegt verkefni. Ef maður er að gera við bilaða vatnslögn og segir: „Réttu mér þvinguna,“ segir samstarfsmaður hans yfirleitt ekki: „Og hvað fæ ég fyrir það?“ – ekki einu sinni þó að þeir séu að störfum fyrir Exxon-Mobil, Burger King eða Goldman Sachs. Ástæðan er einfaldlega skilvirkni (sem er kaldhæðnislegt ef þau alþekktu sannindi eru höfð í huga að „kommúnismi einfaldlega virki ekki“): ef þér er annt um að koma einhverju í verk, þá er skilvirkasta leiðin til þess augljóslega að úthluta verkefnum eftir getu og að sjá til þess að allir hafi það sem þarf til að vinna þau.“

Þegar maður biður ókunnugan um eld, jafnvel sígarettu, eða önnur lítil viðvik af þeim toga, þá gildir annað en ef beðið er um jafngildi í peningum eða mat, segir Graeber: hafi verið borin kennsl á mann sem félaga í reykingum er erfitt að hafna slíkri beiðni. „Samræða,“ heldur hann áfram, „er svið sem liggur sérstaklega vel fyrir kommúnisma. Lygar, móðganir, niðurlægingar og aðrar gerðir munnlegrar árásargirni eru mikilvægar – en máttur þeirra er háður þeirri almennu ályktun að fólk hegði sér yfirleitt ekki með þeim hætti: móðgun kemur ekki við kauninn á neinum nema vegna þess að maður gerir ráð fyrir að aðrir taki yfirleitt tillit til tilfinninga manns,“ og hann bætir því við eins og Kant gerði fyrir löngu síðan í öðru samhengi að það sé ómögulegt að ljúga að einhverjum nema hann geri ráð fyrir að maður segi yfirleitt satt. „Þegar við viljum slíta vinsamlegum böndum við einhvern hættum við með öllu að tala við viðkomandi.“

Gott og vel – einhvers staðar þarna liggur það sem Graeber kallar „lágmarks-kommúnisma“ og segir einkenna öll nærsamfélög. Á íslensku er talað um að „deila kjörum með“ öðru fólki. Hásetahlutur á bát er gott dæmi um kommúnisma í þessari merkingu: hver og einn leggur til eftir getu og fær síðan jafnan hlut í lok túrs. Þetta kerfi lifir enn og má hugsanlega hafa til marks um að það skipti máli upp á skilvirkni um borð, við hættulegar og erfiðar kringumstæður, að þar deili menn kjörum. Hliðstæð innsýn hefur líklega legið til grundvallar þegar um það var deilt á Alþingi upp úr 1980 hvort íslenskt samfélag myndi þola að launamunur yrði þar þrefaldur eða þaðan af meiri.

Kommúnískir blettir. Bókasöfn, háskólasamfélög, leikvellir, fjölskyldur og heimili, vinir, matarboð, „geturðu rétt mér saltið“. Þetta eru engar paradísir, þorpin eru ekki friðsæl og þessi kommúnismi er ekki samheiti við eilífan kærleika og gæsku. En viðmiðið sem Graeber nefnir kommúnisma virðist vera þarna. Um leið og bent hefur verið á það virðist það vera til staðar sem rammi um fjölmörg svið daglegrar tilveru okkar og einkennandi fyrir samskipti jafningja.


Stigveldi eða Egill og ljóðin

Stigveldi eru þarna líka, og raunar oft á sömu slóðum: þau ramma inn samstarf píparanna hjá Exxon-Mobil, hásetanna á togaranum, akademíurnar og fjölskyldurnar: „Við erum öll kommúnistar með nánustu vinum okkar en lénsherrar við lítil börn“. Innan stigvelda skiptumst við ekki á hlutum eftir jafnaðarlögmáli, heldur sem táknum um vald. Innan stigveldissamfélaga, eða höfðingjasamfélaga, eru heiður og sæmd ekki bara siðferðileg undirstöðuatriði, heldur grundvöllur hagkerfisins. Graeber tekur meðal annars dæmi úr íslenska lénssamfélaginu, úr Egils sögu. Egill, kominn nokkuð á aldur, eignast ungan vin sem heitir Einar: fjörugan, sigldan og hagmæltan. Einar mætir einn dag í heimsókn en Egill er ekki heima. Einar hefur með sér skjöld sem jarl hafði gefið honum fyrir kvæði, „og var hann hin mesta gersemi; hann var skrifaður fornsögum, en allt milli skriftanna voru lagðar yfir spengur af gulli, og settur steinum.“ Þegar Einar hefur beðið Egils í þrjár nætur, og Egill er enn ókominn, skilur hann skjöldinn eftir, heldur heim „og sagði heimamönnum, að hann gaf Agli skjöldinn“. Þegar Egill kemur heim og fréttir af skildinum verður hann brjálaður: „Mæli hann allra manna armastur! Ætlar hann, að eg skyli þar vaka yfir og yrkja um skjöld hans? Nú takið hest minn. Skal ég ríða eftir honum og drepa hann.“ Þannig virka gjafir innan stigveldis, þær fela í sér bæði viðurkenningu og áskorun, kröfu um hæfilega ójafnt endurgjald. Innan þess kerfis er hægt að misstíga sig. Á vinnustað getur til dæmis verið vandræðalegt að bjóða yfirmanni mola úr konfektkassa sem maður deilir með starfsfélögum vandræðalaust – gagnvart þeim er maður kommúnisti, en gagnvart yfirmanninum leiguliði og konfektmolinn hlaðinn ólíkri merkingu innan þessara ólíku kerfa, eins þegar allir þátttakendur gera sitt besta til að láta eins og kerfin séu hreint ekki þarna. Vandræðaleikinn sem einkennir alla tilvist millistjórnandans Davids Brent í þáttaröðinni The Office snýst að verulegu leyti um það dómgreindarleysi hans að ætla að fá bæði sleppt og haldið: hann vill vera kumpáni undirmanna sinna og yfirmaður þeirra. Úr verður pínleg, viðvarandi valdníðsla.


Verslun eða Skúli þrælahaldari

Þriðja kerfið er loks viðskipti eða verslun. Og þó að hugmyndin um verslun sé alltumlykjandi í samtíma okkar er hún frekar ný af nálinni sem viðmið. Sem slík raskar hún þeim félagslegu venslum sem fyrir voru, siðum og venjum um vegferð hluta. Enda er tilkoma kapítalismans, segir Graeber, tilkoma ríkja, þrælahalds, lögreglueftirlits, striðsátaka og verslunar sem fylgjast að hönd í hönd. Í sögunni sem Graeber segir eru ríki og markaður ekki þær andstæður sem ætla má af ríkjandi hugmyndafræði síðustu áratuga, heldur nauðsynlega samofin. Dæmi Graebers eru flest frá því landvinningatímabil Evrópu hófst á 15. öld. Mig langar að taka nærtækara dæmi og líta til kafla þeirrar Íslandssögu sem kennd er í grunnskólum, í þessu samhengi – kafla sem er kenndur og þátta sem eru hunsaðir.

Þegar mér var kennd Íslandsgoðsaga í grunnskóla var staldrað við bernskuminningu 18. aldar mektarmannsins Skúla Magnússonar síðar fógeta, frá því að hann starfaði fyrir danskan kaupmann, undir einokunarversluninni alræmdu. Danski kaupmaðurinn kom fram við Íslendingana sem eitthvað annað en kunningja, eitthvað fjarlægara, fólk sem hann þurfti ekki að deila kjörum með. Þegar Skúli var að vigta korn til Íslendings sagði kaupmaðurinn: „Mældu rétt, strákur“ og í það minnsta skildi Skúli hann sem svo að hann ætti að mæla vitlaust: gæta þess að minna korn færi í sekk viðskiptavinarins en hann hafði greitt fyrir. Það hefur áreiðanlega ekki þótt feitasti bitinn í konungsríkinu að vera kaupmaður á Íslandi, og hafi kaupmaðurinn meint það sem hann sagði eins og Skúli skildi það, sem er alls ekki óhugsandi, þá hefur hann vafalaust aðeins verið að reyna að rétta sinn hlut, hann sem hefur vafalaust átt eitthvað miklu betra skilið en norpa á miðju hafi án leikhúss, dansiballa og heimspekifyrirlestra á kvöldin. Og líklega hefur hann átt fátt saman við kúnnana að sælda utan verslunarinnar. Hugsanlega hefur hann gætt þess að kynnast þeim ekki, einmitt til að geta staðið sína plikt í kaupmennskunni. Mælt jafn rétt og honum var frekast unnt.

„Þegar við tökum að hugsa um kommúnisma sem siðferðilegt viðmið“ segir Graeber, „frekar en bara spurningu um eignarhald, verður ljóst að siðferði af þessum toga er alltaf að einhverju leyti til staðar þegar skipst er á einhverju – jafnvel við verslun. Ef maður á í félagslegu samneyti við fólk er erfitt að hunsa stöðu þess fullkomlega. Kaupmenn lækka oft vöruverð fyrir þá sem líða skort. Þetta er ein meginástæða þess að verslunarfólk í fátækrahverfum er nær aldrei af sama þjóðabroti og viðskiptavinir þess; það væri næstum ómögulegt fyrir kaupmann sem ólst upp í hverfinu að græða pening, þar sem hann yrði undir stöðugum þrýstingi um að gefa fólki séns, fjarhagslega, eða í það minnsta veita hagstæð lán, til fátækra ættingja og skólafélaga.“

Einokunarverslunin hefur þá í það minnsta haft þetta til síns ágætis: þar sem kaupmaðurinn kom að utan, staldraði svo og svo lengi við í landinu en var alltaf og varanlega aðkomumaður í huga heimafólks, með annað tungumál og aðra siði, þá gátu heimamennirnir sameinast um að bölva honum fyrir ósanngirnina, hrokann, stærilætið og svo framvegis, án þess að nokkuð skarð kæmi í þeirra eigið samfélag. Þvert á móti hefur það áreiðanlega verið samþjappandi og samfélagseflandi dægradvöl á mannamótum, eins og tal um útrásarvíkinga frá haustinu 2008.

Skúla ofbauð að Danir skyldu svindla fé úr Íslendingum, ofbauð svo að hann yfirbauð og hóf áratugum síðar þrælahald, sem má fyrir sitt leyti segja að sé ærlegra arðrán, blátt áfram en ekki undirförult og svikult eins og danska arðránið. Þrælar Skúla, fangelsaðir fyrir að vera flækingar eða það sem nú heitir atvinnulausir, voru hýstir í tugthúsinu þar sem stjórnarráðið er nú og látnir vinna fyrir sprotafyrirtæki Skúla, Innréttingarnar, iðnaðarfyrirtækið sem hann kom á laggirnar fyrir opinberan styrk en setti á hausinn fyrir því. Skúli rændi þrælana sínu frelsi en skattlagði aðra landsmenn til að greiða fyrir hlekkina og varð fyrir vikið sæmdur heiðursnafnbótinni faðir Reykjavíkur. Þrælarnir skrifuðu ekki eina einustu bók um lífsreynslu sína, höfðu aldrei nein hnyttin ummæli eftir Skúla það spurst hafi, enda sultu þeir þar inni þegar næst gerði kreppu. Því þannig skolaði byltingunni á land norður í hafi: 1789 var pólitískum nútíma hrint úr vör í París með áhlaupi á Bastilluna þar sem fangar voru leystir úr haldi. Aldarfjórðungi síðar hrakaði vöruflutningum frá Danmörku til Íslands vegna Napóleonsstríðanna. Fyrsta viðbragð íslenskra yfirvalda, staðbundin túlkun á þeim vindum frelsisins sem blésu frá Evrópu, var að láta þrælana í stjórnarráðshúsinu svelta í hlekkjum sínum, enda vinnuveitandinn farinn á hausinn þrátt fyrir hagstæð kjör á vinnumarkaði. Þetta er upphafsreitur iðnaðar og markaðar á Íslandi, arfleifð „föður Reykjavíkur“ – í fullkomnu samræmi við uppruna kapítalismans í öðrum heimshlutum, og í samræmi við framhaldið eins og það blasir jafnt við Íslendingum og Grikkjum.

Þrælahald Skúla fógeta var tilefni til að hlaða og múra almennilega veggi í fyrsta sinn: fyrsta steinhúsið á Íslandi var reist undir þrælana hans Skúla.


Brúarsmiðir við múrhleðslu

Er þetta ósanngjörn mynd að draga upp til að bera saman lögmál lágmarks-kommúnisma og verslunar? Áreiðanlega. Og það er jafn ósanngjarnt að segja: hið nauðsynlega samspil ríkja og einkaaðila til að viðhalda markaðshagkerfi birtist aftur um þessar mundir þegar lögum er breytt og dómsmál höfðuð til að stöðva verkefni á við Library.nu. Það er ósanngjarnt að bæta þessu við: Þeir sem við vöndumst að sjá við brúarsmíð og færðu okkur heiminn birtast okkur skyndilega við múrhleðslu: þeir reisa veggi og hindra för okkar til að vernda rétt sinn til innheimtu brúartolla. Eða þetta: Svo miklu fé og hugviti er nú varið í framleiðslu hindrana, að útgefendur vilja selja rafbækur fyrir sama verð og prentaðar, og greiða höfundum sama fjórðungs-hlutinn af söluandvirðinu, með þeim rökum að afritunarvarnir sé jafn dýrar og bókagerðin hingað til: umbrot, pappír, blek, prentun og bókband. Með öðrum orðum hyggjast útgefendur kosta jafn miklu til að hlaða múra og áður til að byggja brýr, en rukka lesendur fyrir þjónustuna eins og hún sé af sama toga. Eins og allt hafi ekki breyst.

Það er óþægilegt að nefna þetta vegna þess að bókaútgefendur eru að uppruna brúarsmiðir og réttilega stoltir af starfi sínu. Þeir geta meira að segja rökstutt múrana, ekki síst fyrir rithöfundum: hver á að skrifa góðar bækur ef enginn fær greitt fyrir það? En eigi að svara þessari retórísku spurningu af nokkrum heilindum þarf ef til vill að líta til þess hvernig er í reynd greitt fyrir bækur: að lesendur greiða höfundum nú þegar laun gegnum listamannalaun ríkissjóðs; að höfundar leita hver til annars, til kollega og vina, til að fá yfirlestur, ráðleggingar og ritstjórn, hver öðrum harðlínukommúnistar; að höfundarstarf innan fræða er ýmist unnið fyrir námslán eða rannsóknarstyrki; að sölutekjur af bókum eru flestum höfundum í mesta lagi svolítil þóknun; að bókabúðir eru alltaf að fara á hausinn og láta bjarga sér og það eru opinberir styrkir líka; að hagkerfi bóka er þegar blandað hagkerfi. Svolítið kommúnískt, svolítið stigveldisbundið, svolítið kapítalískt.

Bókasafnið Library.nu, aðgengilegasta bókasafn veraldar, var lagt niður að kröfu múrara um leið og fyrri tíðar múrfellirinn Encyclopedia Britannica laut í vinsemd og bróðerni höfði fyrir de facto arftakanum, Wikipediu. Skulum við segja. Segjum líka að staðan sé þá 1:1 og leikurinn æsispennandi, hvort sem vinnutilgáta okkar um múra er sú að þeir rísi, standi, falli eða séu ekki þarna. Og jú, víst eigum við öll vinnutilgátu um múra.


Að hlaða spegla

Það má heita ljóst hver vinnutilgáta Graebers er. Undir lok bókarinnar fellur hann hins vegar í gryfju sem virðist stundum ómótstæðileg innan gagnrýninna samfélagsfræða: þegar greiningunni og sögurýninni sleppir tekur við tveggja blaðsíðna kafli þar sem hann leggur drög að svari við spurningunni: hvað ber að gera?

„Í þessu riti hef ég að mestu leyti forðast að leggja fram áþreifanlegar tillögur, en leyfið mér að ljúka máli mínu á þeim nótum. Mér virðist að það sé löngu tímabært að halda einhvers konar biblískt júbileum sem myndi snerta bæði á alþjóðaskuldum og neysluskuldum. Það væri fagnaðarefni, ekki aðeins með því að létta á svo mikilli raunverulegri mannlegri þjáningu, heldur einnig með því að minna okkur á að peningar eru ekki ósnertanlegir, að það að borga skuldir er ekki siðferðilegt kjarnaatriði, að allir þessir hlutir eru manngerðir og ef lýðræði á að hafa nokkra þýðingu felst hún í getunni til að samþykkja sameiginlega að haga hlutum öðruvísi.“

Gott og vel. Kannski finnur maður til meiri þreytu gagnvart þessari orðræðu á Íslandi en annars staðar – en hún mætir mér nú sem bitlaus og áhrifalítil. Gildi bókarinnar liggur í greiningunni, í mannfræðinni. Ritið nær að storka hugmyndum, setja eitthvað á hreyfingu innan storknaðra orða. Pólitíska aðferðafræðidaðrið seilist hins vegar í átt að samsöng eða peppi, sem getur verið full þörf fyrir á einhverjum vettvangi en er svo kunnuglegt og má svo víða finna í eftirhrunssíbyljunni að það birtist mér nú sem uppgjöf. Eins og hugsun bókarinnar sé vigtuð og allt sem á undan fór þar með þýtt yfir í fjölda like-smella á kapítalismann eða múrfall. Ekki að ég sé með betri tillögu. Ég er bara orðinn þreyttur á tillögum. Eða í það minnsta að þær birtist á öllum stöðum, svona fyrirsjáanlega, eins og gítarsóló á miðjum níunda áratugnum. Tillaga er tómatsósa. Gakktu sjö sinnum kringum Stjórnarráðið rangsælis á Jónsmessunótt, sjö sinnum sjö sinnum rettsælis kringum kínverska sendiráðið undir dögun á næsta vorjafndægri, speglaðu þig í Kauphöllinni a aðfaranótt þriðju hvítasunnu eftir næsta hlaupár, og sjá: dagur mun rísa.

Haukur Már Helgason

fimmtudagur, 15. mars 2012

Það sem þagað er um (eða kannski bara: To Sir With Love)

Angantýr er bók í litlu broti, blóðrauð á litinn en titillinn hvítur með skrauti í kringum, línuteikningu skyldrar ættar og þær sem spænska skáldið Lorca lagði stund á og fylgja bókum hans. Þannig mynstur segir: Lýrík. Gripnum fylgir bókamerki í stíl, rautt með munstri, hvítt að aftan með kvótum. Höfundarnafnið er neðst á kápunni og einnig hvítt: Elín Thorarensen.

Hvers vegna er ég að tala um liti, brot og línuteikningar? Jú, vegna þess að umbrot skiptir máli og látleysi er galdur ef það á að vera töff en ekki tilgerðarlegt. Og bókin er fínn prentgripur, laus við hroka, umbúnaðurinn í svipaðri kategoríu og besta kápa síðasta árs að mínu mati, kápan á Jarðnæði eftir Oddnýju Eir sem Ragnar Helgi Ólafsson gerði. Raunar eru fleiri ástæður fyrir útliti bókarinnar eins og Soffía Auður Birgisdóttir víkur að í eftirmála hennar, gripurinn kallast ekki aðeins á við útlit frumútgáfu verksins frá árinu 1946 heldur kallaðist sú útgáfa á við bækurnar sem Jóhann Jónsson skrifaði í. Blaðsíðurnar í frumútgáfunni eru bleikar, ég komst í tæri við hana í vikunni hjá mætum manni vestur í bæ og uppgötvaði að af síðunum leggur merkilega lykt. Eigandi bókarinnar sagði mér að hún dofnaði ekkert með árunum og að öll eintökin lyktuðu svona. Þetta var góð lykt. Útgefandi endurútgáfunnar er Lesstofan, nýtt og sérlega gæfulegt forlag.

Innihaldið er þrískipt: Texti Elínar Thorarensen um Jóhann Jónsson skáld og ástir þeirra í meinum, ævintýri og ljóð eftir Jóhann og áðurnefndur eftirmáli Soffíu Auðar Birgisdóttur. Bókin kom út áður árið 1946 og var fór lágt.

Þá að efninu: Þetta er blíð frásögn. Texti Elínar er stuttur og myndi kannski kallast prósaljóð í öðru samhengi. Hann lýsir sambandi þeirra Jóhanns í endursýn, eftir að Jóhann er dáinn, mörgum árum eftir að ástir þeirra urðu að engu fyrir sakir fátæktar og vesældar og kannski einhvers fleira, hugsanlega var barnsfæðing í spilinu; bókin er skrifuð eftir að Elín les grein Halldórs Laxness um vin sinn, Jóhann. Hún er skrifuð til að bæta upp í myndina af Jóhanni, klára hálfsagða sögu. Engum til höfuðs. Elín orðar það svona: "Hálfsögð er sagan, ef einn segir."

Sagan er brotakennd og lítt línuleg, hún gefur ekki mynd af því hvernig, nákvæmlega, þau kynntust og gerir ekki tilraun til að lýsa Jóhanni fjarlægt, hlutlægt eða einu sinni upphafið, kannski einmitt ekki í upphöfnu ljósi þegar öllu er á botninn hvolft. Myndin sem Elín gefur er nálæg, skotin senum og samræðubrotum, mynd af ástarsambandi og tíðaranda í senn, viðkvæmnislegur og næmur prósi sem má kalla rómantískan en ég vil það þó síður: Eins mætti segja hann hamsunskan en tilfinninganæmi í ætt við Knut Hamsun var í tísku á þessum tíma.

Hún kallaði hann Angantý, hann kallaði hana Brynhildi.

„Á svona fögru kvöldi vil ég deyja með þér, Brynhildur!“ „En ég vil lifa með þér, Angantýr!“ Við fengum hvorki að lifa né deyja saman. (33)

Ef þetta er ekki bókmenntatexti, þá veit ég ekki hvað. Hvort um sig nefnir hitt skálduðu nafni (úr fornbókmenntum) en fremur en að vera hástemmdur er textinn presís. Því fylgir, auðvitað, að þeir sem líta á íróníu sem frumskilyrði bókmenntatexta fá ekki það sem þeir vilja, að leita að mælskri merkingardreif í texta Elínar er að fara dyravillt, en öllum sem er ótæpilega hætt við „aulahrolli“ gefst hér kærkomið tækifæri til að hrista það helvíti af sér. Því hér er alvara eins og hún lítur út andspænis dauða og missi, heilli mannsævi í endurliti, sögum á reiki, hálfsannleika; enginn skortur á æðruleysi en sannarlega engin brandaramennska.

Ég alltsvo vil meina að Elín hafi verið merkilegur rithöfundur. Ef hún var það ekki, hvernig stendur á því að hún hafði einmitt hugrekkið til að standa á skjön við samtíma sinn – og jafnvel þvert á hliðarstrauma menntamanna –, hví hafði hún þá einmitt hugrekkið sem er þegar upp er staðið helsti mælikvarðinn á góðan rithöfund?

Annað brot í grenndinni sýnir anda þessa skrifs og mannlýsinga þess:

Það var mikið óhappaverk, að rægja Gest við Ingunni, því að hann unni henni mikið, og hún iðraðist þess alla æfi að fara eftir þessu ólánsbréfi ,sem henni var skrifað.(34)

Hér er verið að tala um Ingunni, föðursystur Elínar, sem sleit trúlofun við Gest Pálsson skáld vegna rógs. Meðal annarra orða: Sá sem les texta frá fyrri hluta tuttugustu aldar hlýtur fyrr eða síðar að komast á þá skoðun að ríkjandi greinamerkjavenjur dagsins í dag taki lífið úr texta, hikið, blæbrigðin og kúnstpásurnar fletjast út í æðibunugangi kommuleysisins. Það skiptir svo sem ekki máli, hér skín í gegn sá mannskilningur að hlutirnir eru viðkvæmari en margur heldur, orð séu þung og skrefin torveld, að veröldin sé staður þar sem hlutirnir hafa afleiðingar.

Þetta er bók sem auðgar skilninginn á Jóhanni Jónssyni sem skáldi, höfundarferli hans og persónu. Reyndar er ekki alveg víst að nú um stundir kveiki allir á því hver hann yfirleitt var, Jóhann Jónsson var goðsögn í lifanda lífi, höfundur „Söknuðar“, einhvers magnaðasta nútímaljóðs íslenskrar bókmenntasögu, ljóðsins sem byrjar á: „Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað“. Hann var talandi skáld, að sögn, haltur eins og Byron, dó fyrir aldur fram og sagði vinum sínum sögur á banabeðinu sem þeir skrifuðu skáldverk upp úr. Þeir sem sóttu bókabúðir á árunum eftir 1986 eiga vafalaust heildarsafn hans sem þó vantar ýmislegt í og sömu sögu má segja um eldra heildarsafn Jóhanns.

Hér birtist öðruvísi Jóhann, ungur maður sem vildi verða ævintýraskáld að hætti H.C. Andersen, maður sem lifði ríku bókmenntalífi með Elínu Thorarensen, hún leit á hann sem ævintýraskáld og þau lifðu í undralandi. Um endurútgáfuna hefur sitthvað verið skrifað, hér má benda á bloggfærslur, eina og aðra, og ekki síst grein sem Soffía skrifaði í Kistuna á sínum tíma, á prýðisfínan útvarpsþátt Soffíu Auðar, ég finn bara annan af tveimur (einhvern tíma fjallaði Jón Hallur Stefánsson líka um Angantý í þáttaröð um jaðarbókmenntir), auk greina í Tímariti Máls og menningar eftir Guðrúnu Helgadóttur og Gunnar Má Hauksson sem hvor um sig bæta sýnina á liðna tíð.

En um frumútgáfuna var alltsvo þagað þykku hljóði. Hvers vegna? Og verður sagt með vissu að svo sé? Er hægt að kalla það þöggun, ótvírætt? Nei, auðvitað ekki ótvírætt. Þöggun er einmitt hinn fullkomni glæpur: Það er ekki hægt að færa sönnur á hann. – Hvernig þöggun? spyr þaggarinn. – Er eitthvað konkret til marks um hana? Er hún annað en öfund og dómgreindarbrestur og þeim sem slíkt tautar til skammar? kann að fylgja í kaupbætið með háðsglotti og flími. Hinn þaggaði á ekkert svar, því ekki verður þögn komið fyrir innan gæsalappa, tilvitnanabók um þöggun í verki væri þunn í roðinu.

Allir sem eitthvað hafa fylgst með umræðum um konur og bókmenntir á undanförnum áratugum þekkja hugtakið, sem er skýrt í bókinni. Þöggun kann að gerast nokkurn veginn svona: Hópur fólks, til dæmis menntakreðsa, kannski menntastétt í heilu samfélagi, kemur sér saman – beinlínis, með samkomulagi sem hreinlega er orðað en þó á laun – um að þegja yfir einhverju sem er því, af einhverjum orsökum, óþægilegt. Í því þaggaða getur falist það merkilegasta og mest lýsandi við sögu hvers tímabils; sagan um Angantý og Brynhildi segir býsna margt um íslenska sögu, ýmislegt um andrúmsloft og viðhorf liðins tíma, þekkingarkerfi hans og útilokunarhætti, ef ég má orða það svolítið hátimbrað.

Heimildir Soffíu Auðar í eftirmála um viðtökur og þöggun bókar Elínar eru sumar hverjar munnlegar og svo er að sjá sem sitt lítið af hverju hafi verið gert til að stoppa bókina af. Einn helsti menningarfrömuður landsins, Kristinn E. Andrésson, er sagður hafa reiðst bókinni svo mjög að hann lét hana hverfa af bókasafni einkaheimilis og minnir sú saga talsvert á sögu sem sögð er af Halldóri Laxness og Kristjáni Eldjárn forseta sem stóð hann að verki við að hnupla sínum kommúníska ópus úr bókasafninu á Bessastöðum eftir að allt sem þar stóð hafði reynst rangt. Það fallega við þá sögu er hve ljúfmannlega Kristján brást við þessu, með fullum skilningi á mennskum breyskleika og mennskri freistni. En þó lét hann bókina standa á Bessastöðum.

Hvers vegna að þagga þessa bók? Soffía Auður leiðir að því líkum að ástarsamband þeirra Elínar og Jóhanns hafi riðlað of mörgum hólfum í borgaralegu samfélagi síns tíma, stéttvitund borgarans hafi verið viðbrugðið og ekki síður gæsla á ímynd skáldsins sem er ansi sterk; hún segir einnig að hugsanlega hafi aldursmunar þeirra skötuhjúa, 15 ár, verið viðkvæmt mál á þeim tíma. Í svipaðan streng tekur Guðrún Helgadóttir síðan í grein í Tímariti Máls og menningar. Þetta er djörf kenning og ögrandi. Var aldursmunur svo mikið mál í fortíðinni? Afi minn og amma voru fædd á sitt hvorri öldinni og aldursmunurinn hljóp á áratugum. En hann var hinsvegar á hinn veginn: Hún var miklu yngri en hann.

Það mætti segja mér að aldursmunur geti býsna viðkvæmur bæði þá og nú og ekki síst þegar konan er eldri og kvenótti bætist á aldursníð ofan. Tilfellið er hinsvegar að Soffía einfaldar ekki málið í eftirmála sínum heldur gerir ráð fyrir ýmsu, þetta er margslungið og snúið. Í texta Elínar kemur fyrir margt mektarfólk úr menningarheiminum og hann er ekki síður aldarfarslýsing en ástarsaga. Og það má kannski ekki hver sem er tala hvar sem og hvenær sem er um menningu, síst af öllu flækja myndina af skáldi sem er jafn mikilvægt íslenskri menningu og Jóhann Jónsson.

Nú ætla ég ekki að reyna að tækla þetta (þetta er blogg, þið vitið, ég hef aldrei litið á mig sem fræðimann) heldur bendi á firnagóðan eftirmála Soffíu, þar sem enda er komið inn á ýmislegt fleira, til dæmis er þar að finna uppljóstrun um tilurð kvæðis Þórbergs um Skólavörðuholtið hátt. Sjálfum finnst mér ekki ólíklegur sá möguleiki sem Soffía bendir á að goðsagnasmíðin í kringum Jóhann Jónsson hafi illa mátt við því að einhver færi að hrófla við henni, bæta í hana mennsku. Helsti ábyrgðarmaður goðsagnarinnar um Jóhann var Halldór Laxness.

Ég er hugsanlega kominn út á hálan ís en upphafin mynd Halldórs Laxness af Jóhanni Jónssyni kann að hafa verið um leið heimsmynd tímans, heimsmynd sem felur í sér Halldór sjálfan, heimsmynd sem mátti ekki við of mikilli mennsku þótt hún kenndi sig gjarnan við húmanisma. Þessar þagnir í tónverki heimsmyndarinnar, svo ég haldi ótrauður áfram með eignarfallstimbur, eru víðar og á fleiri stöðum kemur Halldór við stóra sögu. Hefur til dæmis einhver kannað það, án þess að líta undan, hvernig grein sem Halldór skrifaði um Hellismannasögu tók gagngerum breytingum þegar hún var endurbirt í bók en þó var þar að engu getið og ekki þakkað að Þorsteinn frá Hamri hafði skrifað andsvar og hrakið allar helstu fullyrðingar Halldórs um söguna svo ekki léku nokkur tvímæli á? Þorsteinn gaf út skáldsögu nokkru síðar þar sem Hellismannasaga kemur við sögu. Sú bók fór lágt.

Hvað er þagað um og af hverju? Það getur verið erfitt að sjá mikilvægi þessara spurninga eftir því sem klisjur laumast inn í tungutak okkar, orð lenda í ofnotkun og útvatnast, því auðvitað er ekki hægt að stóla á að allt sem þagað er um sé þaggað; en þetta er mikilvæg og gild spurning. Mjög mikilvæg. Það er til þöggun. Af ýmsu tagi. Málið er ekki „úrelt“ í dag, svo ég noti mest óþolandi orð íslenskrar tungu.

Þetta er bók sem má mæla með fyrir áhugafólk um gömlu Reykjavík eða kannski áhugafólk um hugmyndalega hugarfarsfleka, fólk sem vill víkka sýn sína á Jóhann Jónsson, áhugafólk um óþægilega nálæga bókmenntatexta eða kannski áhugafólk um ástina eða þagnir, taktmælingarfélag Reykjavíkur, tónverkamiðstöð, hellarannsóknarfélag Íslands eða Lulu, þeirrar sem söng To Sir With Love. Þetta er bók sem á margvíslegt erindi.

Einmitt þegar hrópað er hæst og erfiðast er að hugsa það, þá á að spyrja: Yfir hverju er þagað?

PS Þetta er ekkert mjög blogglega stílað hjá mér en ég vil samt endilega heyra skoðun þeirra sem hafa lesið bókina og hinna sem eiga það eftir, kommentakerfið er opið. Eða ef einhver vill diskútera fordóma og hatur út í Önnu Mjöll og Cal eða Madonnu og unga kærastann hennar eða óbeit á aldursmun í fortíðinni. Svo má líka bara þegja.

Hermann Stefánsson